Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í kjölfar tollahækkunar sinnar á ál og stál í dag að „afar erfitt“ væri að ná samkomulagi við Xi Jinping, leiðtoga Kína. Gert er ráð fyrir að leiðtogarnir tveir muni funda saman í vikunni og binda einhverjir vonir við að fundurinn muni leiða til viðskiptasamnings milli ríkjanna sem geti dregið úr spennu þar á milli.
„Mér líkar vel við Xi forseta Kína, hef alltaf gert það og mun alltaf gera það, en hann er MJÖG HARÐUR OG ER AFAR ERFITT AÐ SEMJA VIÐ HANN!!!,“ skrifaði Trump á samfélagsmiðli sínum Truth Social í morgun.
Nýjustu viðskiptaaðgerðir Trumps koma fram á sama tíma og ráðherrar Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) komu saman í París til að ræða horfur heimshagskerfisins í ljósi tollaásetnings Trumps sem hefur valdið óróa á alþjóðlegum mörkuðum.
Kína var eitt aðalskotmark tollaásetnings Trumps í apríl þegar lagðir voru 145 prósenta tollar á vörur frá Kína og svaraði Kína í sömu mynt með því að leggja 125 prósenta tolla á bandarískar vörur.
Í maí náðist samkomulag á milli Kína og Bandaríkjanna í tollamálum þar sem gert var 90 daga hlé á gagnkvæmum tollum.