Bandaríkin tvöfalda tolla á stál og ál

Donald Trump Bandaríkjaforseti.
Donald Trump Bandaríkjaforseti. AFP

Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti hef­ur und­ir­ritað til­skip­un um tvö­föld­un tolla á inn­flutn­ingi á stáli og áli úr 25% í 50%.

Með þess­ari til­skip­un hækka inn­flutn­ings­gjöld á málm­ana, sem eru notaðir í allt frá bíl­um til niðursuðumat­ar, í annað sinn síðan í mars.

Trump hef­ur sagt að aðgerðirn­ar, sem tóku gildi í dag, séu ætlaðar til að tryggja framtíð banda­ríska stáliðnaðar­ins.

Þrátt fyr­ir tvö­föld­un á toll­um á stáli og áli mun inn­flutn­ing­ur frá Bretlandi hald­ast 25 pró­sent í bili, á meðan báðir aðilar vinna að því að út­færa tolla og kvóta í sam­ræmi við skil­mála viðskipta­samn­ings síns.

Evr­ópu­sam­bandið hef­ur sagt að það harmi áætl­un Trumps um að hækka tolla á stál og málma og var­ar við því að það grafi und­an áfram­hald­andi viðleitni til að ná samn­ing­um við Banda­rík­in. 

Víðtæk­ir toll­ar sem Trump hef­ur komið á hef­ur valdið spennu í sam­skipt­um Banda­ríkj­anna við viðskipta­lönd sem sum hafa átt í samn­ingaviðræðum um að kom­ast hjá toll­un­um. Þó að sum­ir af víðtæk­ustu toll­um Trumps standi frammi fyr­ir laga­leg­um áskor­un­um hef­ur þeim verið leyft að vera í gildi í bili þar sem áfrýj­un­ar­ferli er í gangi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert