Starfsmannastjóri Volodimírs Selenskí, forseta Úkraínu, kallaði eftir frekari refsiaðgerðum Bandaríkjanna gegn Rússum á fundi með Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Hann óskaði einnig eftir auknum stuðningi Bandaríkjanna við loftvarnir Úkraínu.
„Við ræddum stöðuna á vígvellinum og þörfina á því að efla loftvarnastuðning við Úkraínu“ sagði Andriy Yermak, starfsmannastjóri Selenskís. „Refsiaðgerðir eru jafnframt nauðsynlegar.“
Í fyrradag ræddu þingmenn öldungadeildar Bandaríkjaþings um að harðir tollar yrðu settir á Rússland og aukatollar yrðu settir á þau ríki sem enn stunda viðskipti við Rússland.
Leiðtogi meirihluta öldungadeildarinnar, John Thune, sagði ríkisstjórn Donalds Trump enn vonast eftir því að sátt náist milli stríðandi fylkinga, en öldungadeildin sé reiðubúin að hjálpa til við að þrýsta á rússnesk stjórnvöld.