Segja Úkraínumenn hafa hafnað tillögu um vopnahlé

Pútín og Selenskí.
Pútín og Selenskí. AFP

Rúss­ar segja Úkraínu­menn hafa hafnað til­boði um skamm­tíma­vopna­hlé til að leyfa báðum þjóðum að fjar­lægja lík fall­inna her­manna af víg­vell­in­um.

„Ég tel þetta vera gróf mis­tök af hálfu stjórn­valda í Kænug­arði,“ sagði Ser­gei Lavr­ov, ut­an­rík­is­ráðherra Rúss­lands. 

Samn­inga­nefnd­ir Úkraínu og Rúss­lands funduðu síðast á mánu­dag í von um að semja um frið í Úkraínu. Samn­inga­nefnd­irn­ar náðu sam­an um fanga­skipti en ekki tókst að ná sam­komu­lagi til að binda enda á inn­rás­ar­stríð Rússa í Úkraínu. 

Veik­ir og særðir her­menn send­ir til síns heima

Samþykkt var að skipt­ast á öll­um föng­um und­ir 25 ára aldri auk þess sem all­ir veik­ir og særðir her­menn yrðu send­ir til síns heima. 

Eft­ir fund­inn á mánu­dag sagðist samn­inga­nefnd Rússa hafa lagt til tveggja til þriggja daga hlé á ákveðnum svæðum ná­lægt víg­lín­unni. Vildu þeir ekki gefa mikið upp um hvað annað fæl­ist í til­lög­unni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert