Sænsk og eistnesk yfirvöld hafa skrifað undir sögulegan samning sem ber með sér að um 600 dæmdir glæpamenn geti afplánað fangelsisdóma sína í Eistlandi.
Ulf Kristersson forsætisráðherra Svíþjóðar, lýsir samkomulaginu sem „sögulegu.“
Mikill skortur er á fangelsisplássum í Svíþjóð og leituðust sænsk yfirvöld eftir samstarfi við eistnesk yfirvöld í vor. Ber samkomulagið með sér að Svíar munu leigja heilt fangelsi í Tartu í Eistlandi undir fangana.
Einungis karlmenn verða vistaðir í fangelsinu en bæði sænskir og erlendir ríkisborgarar gætu verið vistaðir þar. Eistneskir ríkisborgarar verða ekki fluttir í fangelsið.
Aðeins fangar sem ekki eru taldir sérstaklega hættulegir verða sendir þangað.
Starfsfólk í Tartu verður eistneskt, en þeir munu geta talað ensku. Fangar munu einnig eiga rétt á túlkaþjónustu.
Þótt eistnesk lög gildi innan fangelsisins, verður tryggt að fangarnir njóti sömu réttinda og í Svíþjóð, þar með talin réttindi tengd vinnu og virkni, heimsóknum og samskiptum við umheiminn.
Sænska fangelsismálastofnunin mun einnig hafa starfsfólk á staðnum til að aðstoða við þjálfun eistnesks starfsfólks.
Gunnar Strömmer, dómsmálaráðherra Svíþjóðar, segir hvern fangelsisdóm sem afplánaður verður í Eistlandi kosta ríkið um 8.500 evrur á mánuði, en tilsvarandi kostnaður í Svíþjóð er um 11.500 evrur.
Til að samningurinn taki gildi þarf að fá þriggja fjórðu hluta samþykki í sænska þinginu. Ríkisstjórnin og samstarfsflokkur hennar, Svíþjóðardemókratar, þurfa því stuðning Jafnaðarmanna, sem nú eru í stjórnarandstöðu, til að samningurinn verði að veruleika.