Nýr samstarfssamningur Danmerkur og Noregs á sviði varnarmála tekur gildi í dag, á þjóðhátíðardegi Danmerkur, og felur auk annars í sér þann möguleika að norskar P-8 Poseidon-kafbátaleitarflugvélar annist eftirlit með rússneskum kafbátum við Grænland sem lýtur danskri stjórn.
Samkvæmt nýja samningnum, sem raunar var boðaður á SAMAK-leiðtogafundinum í Ósló í öndverðan marsmánuð, munu grannríkin tvö eiga í samstarfi um þjálfun, heræfingar, kennslu, rekstur og viðhald í þágu norrænna varnarmála.
Hans Martin Steiro, ofursti og yfirmaður orrustuþotuflota norska herflugvallarins á Evenes, segir við dönsku sjónvarpsstöðina TV2 að enginn vafi leiki á því að P-8-kafbátaleitarvélarnar ráði vel við það verkefni að leita rússneskra kafbáta á grænlensku hafsvæði. Vélar þessar, sem í grunninn eru af Boeing-gerð, eru sérútbúnar fyrir norska flugherinn til kafbátaleitar í Barentshafinu norðan við landið.
„Það er rétt að Noregur og Danmörk munu eiga í nánara samstarfi um eftirlit í norðri, en í smáatriðum hefur samstarfið ekki enn verið útfært svo þau þurfum við að ræða síðar,“ segir Tore O. Sandvik varnarmálaráðherra Noregs í samtali við norska ríkisútvarpið NRK þar sem hann staðfestir tilvist nýja samkomulagsins.
Steiro ofursti bendir á að samstarfið geti orðið til þess að eftirlit Norðmanna með rússneskum kafbátum við strendur Noregs veikist. „Við höfum akkúrat bolmagn til að leysa eigin verkefni svo ef ætlunin er að lána Dönum vélarnar mun það koma niður á okkar eigin eftirliti með Rússum í Barentshafi,“ segir ofurstinn.
Þá tilkynntu norsk stjórnvöld um það í morgun að þau hygðust, í samstarfi við Eistland, Finnland, Litáen, Holland og Svíþjóð, kaupa fjölda nýrra CV90-brynvagna sem nýttir eru til að flytja hermenn og annast varnarskothríð í bardögum auk þess sem þeir nýtast til sjúkraflutninga.
Að lokum liggur fyrir samningur við Þjóðverja um kaup á JSM-flugskeytum, sérútbúnum fyrir F-35-orrustuþotur Norðmanna, sem grandað geta vel vörðum skotmörkum á sjó og landi úr mikilli fjarlægð. Andvirði samningsefnisins nemur 6,5 milljörðum norskra króna, jafnvirði tæplega 82 milljarða íslenskra króna.