Hegseth: Geta ekki eingöngu reitt sig á Bandaríkin

00:00
00:00

Pete Heg­seth, varn­ar­málaráðherra Banda­ríkj­anna, sagði við banda­lagsþjóðir í NATO í dag að þær gætu ekki reitt sig ein­göngu á Banda­rík­in varðandi varn­ar­mál. Hann hvatti NATO-rík­in til að samþykkja út­gjalda­áætl­un til varn­ar­mála upp á fimm pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu.

Hann sagði að skila­boð banda­rískra stjórn­valda myndu áfram vera skýr. Það væri fæl­ing og friður í gegn­um styrk.

„Það er ekki hægt og mun ekki vera hægt að treysta á Banda­rík­in í heimi þar sem marg­ar ógn­ir steðja að,“ sagði Heg­seth á fundi með starfs­systkin­um sín­um í NATO í Brus­sel.

Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sést hér fyrir miðri mynd. Hann …
Pete Heg­seth, varn­ar­málaráðherra Banda­ríkj­anna, sést hér fyr­ir miðri mynd. Hann er nú stadd­ur í Brus­sel í Belg­íu þar sem hann fund­ar með evr­ópsk­um starfs­systkin­um sín­um. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert