Franskir hafnarstarfsmenn í Marseille í Frakklandi hafa hindrað sendingu hergagna sem ætluð eru Ísraelsher. Að sögn verkalýðsfélags starfsmannanna er þetta gert í mótmælaskyni við aðgerðir Ísraela í Palestínu.
Starfsmennirnir hafa neitað að hlaða kössum af tenglum sem notaðir eru til að auka hraða byssuskota um borð í flutningaskip sem ætlað er hernum.
Tenglarnir eru litlir málmhlutir sem notaðir eru til að tengja saman vélbyssukúlur og gera hermönnum kleift að skjóta hraðar úr byssunum. Til stóð að senda 19 vörubretti af tenglunum til hersins en þeir eru framleiddir af fyrirtækinu Eurolinks í Marseille.
Christophe Claret, leiðtogi hafnarverkmannanna, sagði í samtali við AFP-fréttastofuna að starfsmennirnir hafi fengið þær upplýsingar að hlaða ætti skipið með tenglunum í dag. Í kjölfarið ákváðu starfsmennirnir að leita að tenglunum og koma þeim frá svo ekki var hægt að koma þeim til hersins.
Benti Claret á að enginn annar gæti hlaðið skipið nema hafnarverkamennirnir.