Raunverulega ástæðan fyrir því að skjöl er varða mál Jeffrey Epstein hafa ekki verið gerð opinber er sú að nafn Donald Trump Bandaríkjaforseta er þar að finna. Þetta segir Elon Musk, ríkasti maður heims, í færslu á samfélagsmiðli sínum X.
Epstein var sakaður um mansal og kynferðisbrot gagnvart tugum ungra stúlkna. Skjöl er varða mál hans og hverjir kunna að hafa tekið þátt í brotum Epstein hafa ekki verið gerð opinber.
Trump hefur sjálfur oft gagnrýnt það að skjölin hafi ekki verið birt.
Það virðist vera sem að vináttu Trump og Musk sé lokið en Musk hætti nýlega í starfi sínu innan DOGE, sérstakrar stofnunar með það hlutverk að hagræða í ríkisrekstri.
Musk hefur opinberlega gagnrýnt efnahagsfrumvarp Trumps, sem hann hefur kallað „viðbjóðslega andstyggð.“
Gömlu félagarnir skjóta nú föstum skotum hvor á annan á samfélagsmiðlum.
Bandaríkjaforseti sagði fyrr í kvöld í sjónvörpuðu innslagi frá skrifstofu sinni að hann sé verulega ósattur við gagnrýni Musk.
Hann hótaði jafnframt að segja upp öllum samningum sem Musk og fyrirtæki hans hafa gert við bandaríska ríkið.
Þetta hefur valdið því að hlutabréf í Teslu, rafbílafyrirtæki Musk, hafa hríðfallið. Virði Teslu hefur fallið um 15 prósent, eða 100 milljarða dollara, í kjölfar yfirlýsinga forsetans.
Trump og Musk gefa ekkert eftir þessa stundina í deilum sínum.
Friedrich Merz, kanslari Þýskalands er þessa stundina í opinberri heimsókn í Hvíta húsinu en Trump lét þau ummæli falla í viðurvist kanslarans í samtali við blaðamenn vestanhafs að hann væri mjög vonsvikinn vegna ummmæla Musk, en hann segist hafa gert mikið fyrir Musk.
Musk var hinsvegar fljótur að svara ummælum forsetans á samfélagsmiðlum. Hann segir að Trump hefði tapað kosningunum ef ekki hefði verið fyrir sína hjálp.
Fréttin hefur verið uppfærð