Fjórir drepnir í árásum Rússa á Kænugarð

Slökkviliðsmenn í Kænugarði að störfum í nótt.
Slökkviliðsmenn í Kænugarði að störfum í nótt. AFP

Rúss­ar gerðu um­fangs­mikl­ar dróna­árás­ir víða í Úkraínu í nótt og drápu að minnsta kosti fjóra og særðu 20 í höfuðborg­inni Kænug­arði, sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá úkraínsk­um emb­ætt­is­mönn­um í dag.

„Kænug­arður varð fyr­ir enn einni dróna­árá. Björg­un­araðilar eru að bregðast við af­leiðing­um á nokkr­um stöðum víðs veg­ar um borg­ina,“ skrifaði neyðarþjón­usta Úkraínu á Tel­egram.

Volodimír Selenski Úkraínu­for­seti sagði í dag að Rúss­ar hafi skotið meira en 400 drón­um og 40 eld­flaug­um á Úkraínu í nótt og hvatti hann banda­menn sína til að þrýsta á rúss­nesk stjórn­völd til að binda enda á stríðið.

Vitali Klit­sjko, borg­ar­stjóri í Kænug­arði, seg­ir að fjög­ur dauðsföll hafi verið staðfest í borg­inni og 20 hafi særst, þar af 16 sem voru flutt­ir á sjúkra­hús.

Dróna­árás­ir Rússa skemmdu járn­braut­arteina á Kænug­arðssvæðinu og þá brut­ust út eld­ar á nokkr­um stöðum í borg­inni, þar á meðal í íbúðar­hverfi. Í borg­inni Lutsk í vest­ur­hluta Úkraínu særðust fimm.

Vla­dimír Pútín Rúss­lands­for­seti hef­ur heitið hefnd­um eft­ir ný­lega dróna­árás Úkraínu­manna á rúss­neskt lands­svæði þar sem rúss­nesk­ar sprengjuþotur að verðmæti millj­arða doll­ara voru eyðilagðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert