Svein Jemtland komst í heimsfréttirnar í ársbyrjun 2018 þegar voveiflegt manndrápsmál í Brumunddal í þáverandi Hedmark-fylki vakti athygli um gervalla Skandinavíu og víðar.
Ung kona og móðir, hin 36 ára gamla Janne Jemtland, hvarf sem jörðin hefði gleypt hana aðfaranótt 29. desember 2017 og fylgdist norska þjóðin með leit að henni gegnum fjölmiðla þar til lík hennar fannst 13. janúar í ánni Glommu – sú hefur margt líkið geymt um dagana – og var Svein maður hennar handtekinn samdægurs.
Í hönd fór lögreglurannsókn, ákæruferli, réttarhöld, áfrýjun, fangelsi. Svein Jemtland nýtti hvert hálmstrá og sat við sinn keip um þá skýringu að eiginkona hans hefði ætlað að ráða hann af dögum með sovéskri skammbyssu af hinni sögufrægu gerð Makarov. Til átaka hefði komið með þeim hjónum og Janne Jemtland skotið sjálfa sig í höfuðið fyrir heiftarlega handvömm.
Gaf eiginmaðurinn þá skýringu við aðalmeðferð máls sem lyktaði með 18 ára dómi fyrir manndráp af ásetningi (n. forsettlig drap), 17 ár eftir áfrýjun, að kona hans hefði dregið upp Makarov-skammbyssuna og haft í hótunum við hann. Átök hefðu orðið milli þeirra sem lyktaði með því að Janne heitin Jemtland skaut sjálfa sig í höfuðið þegar hjónin féllu fram af dyraþrepi húss síns í Brumunddal.
Þessa skýringu sagði Leif Øren, skotvopnasérfræðingur rannsóknarlögreglunnar Kripos, útilokaða þegar hann kom fyrir dóminn sem vitni í nóvember 2018, eins og norskir fjölmiðlar og mbl.is greindu frá við aðalmeðferð málsins. Sagðist Øren varla hafa getað hleypt af byssunni sjálfur vegna þess hve stífur gikkur hennar var og nær ókleift hefði verið að beina byssunni að höfði þess sem sjálfur héldi á henni og hleypa af skoti í þeirri stöðu: „Að beina þessu vopni að sjálfum sér gefur mjög stutt skotfæri og um leið er mjög erfitt að taka í gikkinn,“ sagði Øren í vitnastúkunni. Hann var eitt 36 vitna í málinu.
Svein Jemtland hóf sína afplánun svo sem lög gera ráð fyrir og nafn hans hvarf fyrr en varði úr minni landa hans þar til hann nú dúkkar upp óvænt – í þetta sinn sem fórnarlamb í öðru broti.
Þannig eru mál vaxin að nú hefur Lögmannsréttur Borgarþings, einn sex dómstóla norska millidómstigsins lögmannsréttar, dæmt að Jemtland beri 125 daga afsláttur af 17 ára refsingu sinni vegna mannréttindabrota fangavarða gegn honum í fangelsunum í Hamar og Ullersmo.
Teljast brot gegn fanganum alls 250 og snúa að ólögmætum líkamsleitum í fangelsinu þar sem fangaverðir leituðu ítrekað á og í líkama Jemtlands, en Jemtland sjálfur heldur því fram að verðirnir hafi framkvæmt á fórnarlambi sínu 664 líkamsleitir þar sem það sætti téðri meðferð á adamsklæðunum einum.
Auk þessa leituðu verðir einu sinni ólöglega á Jemtland í fangageymslu, 35 sinnum í fangelsinu í Hamar, 159 sinnum á Ullersmo, 15 sinnum eftir heimsóknir lögmanns hans, tólf ólöglegar þvagprufur tóku þeir og héldu Jemtland að lokum í þrettán daga í ónauðsynlegri einangrun vegna meintrar smithættu.
Fyrir vikið styttist afplánunarskeið 17 ára dóms Jemtlands um 125 daga.
„Hann gleðst yfir því að hlýtt var á framburð hans um að hafa sætt 250 mannréttindabrotum í formi ólöglegra líkamsleita að honum nöktum auk einangrunarvistar og þvagprufa, en gremst þó að framburðurinn hafi ekki verið lagður til grundvallar [framburðurinn um 664 leitir],“ segir Lars Mathias Undheim lögmaður Jemtlands við norska dagblaðið VG.
Mikið bar í milli við réttarhöldin hvað fjölda brota snerti og kröfðust Jemtland og lögmaður hans 175 daga afsláttar af árunum 17. Lögmannsréttur taldi 125 daga hæfilegar bætur.