Ísraelsher hefur endurheimt lík hins taílenska Natthapong Pinta frá Gasa. Hann var tekinn í gíslingu í hryðjuverkaárás Hamas 7. október árið 2023.
Í tilkynningu hersins sagði að ráðist hafi verið í aðgerð í gær til þess að endurheimta lík Pinta á Rafha-svæðinu í suðurhluta Gasa.
„Nattaphong Pinta var á lífi er honum var rænt af hryðjuverkamönnum frá Nir Oz þann 7. október 2023 og var myrtur í gíslingu,“ sagði í tilkynningunni.
Israel Katz varnarmálaráðherra sagði að lík Pinta hefði verið flutt til Ísrael í „sérstakri aðgerð“ á Rafha-svæðinu.
Í tilkynningu ráðherrans sagði að Pinta hefði komið til Ísrael frá Taílandi til þess að vinna við landbúnað í leit að betra lífi fyrir hann sjálfan og fjölskyldu hans.
„Hann var myrtur á hrottalegan hátt af hryðjuverkasamtökunum Mujahideen-sveitunum,“ sagði Katz. Sveitirnar eru nánir bandamenn Hamas.
Í tilkynningu hersins sagði að sveitirnar hefðu ráðist á Nir Oz samyrkjubúið í árás Hamas og bæru ábyrgð á dauða nokkurra annarra gísla. Þar sagði að lík annars erlends ríkisborgara væri enn í haldi Mujahideen.
Fjölskylda Pinta og taílensk yfirvöld hafa verið upplýst um aðgerðina sem fór fram í gær.
251 voru teknir í gíslingu í árás Hamas. 55 eru enn í haldi, þar á meðal 31 sem Ísraelsher telur látna.
Samkvæmt Nir Oz-samfélaginu voru 117 íbúar þess drepnir og meira en 60% húsa þeirra eyðilögð.