Donald Trump Bandaríkjaforseti hótaði Elon Musk, ríkasta manni í heimi, „alvarlegum afleiðingum“ ef hann ætli sér að refsa Repúblikönum sem greiða atkvæði með umdeildu fjárlagafrumvarpi.
Ummæli Trumps féllu í samtali við NBC-fréttastofuna í dag en fyrrum félagarnir Trump og Musk hafa gagnrýnt hvor annan á eigin samfélagsmiðlum í vikunni.
Orðaskiptin hófust er Must gagnrýndi „One Big Beautiful Bill“ Trumps eða „stóra fallega frumvarpið“ sem varðar velferðarkerfi, landamæramál, heilbrigðiskerfi, opinberar skuldir og hernaðarmál Bandaríkjanna svo fátt eitt sé nefnt.
Nokkrir þingmenn sem voru á móti frumvarpinu höfðu hvatt Musk, sem var einn stærsti fjárhagslegi bakhjarl Repúblikanaflokksins í forsetakosningunum í fyrra, til að fjármagna forkosningar gegn Repúblikönum sem greiða atkvæði með lögunum.
„Hann mun þurfa að borga fyrir það með mjög alvarlegum afleiðingum ef hann gerir það,“ sagði Trump við NBC án þess að tilgreina hverjar þær afleiðingar yrðu.
Hann sagði einnig að hann hefði „engan“ áhuga á að laga samband sitt við Musk og að hann hefði „engin áform um að tala við hann.“
Í síðustu viku hældi Trump Musk er sá síðarnefndi lét af störfum sem yfirmaður í nýrri deild hagræðingar í ríkisrekstri (DOGE).
Brestir virtust koma í ljós í sambandi þeirra stuttu síðar þegar Musk lýsti hinu stóra og fallega frumvarpi sem „viðurstyggð“.
Trump svaraði fyrir sig í ræðu í Hvíta húsinu í kjölfarið og hafa þeir síðan skipst á því að skjóta hvorn á annan á samfélagsmiðlum.
Deilurnar náðu síðan ákveðnum hápunkti á fimmtudaginn þegar Musk sagði á samfélagsmiðlinum X að nafn Trumps væri að finna í Epstein-skjölunum.
Eitthvað virðist sem svo að félagarnir fyrrverandi hafi verið farnir að róast en Trump sagðist óska Musk alls hins besta við fjölmiðla í gær og svaraði Musk „sömuleiðis“ á X.
Musk hefur nú eytt færslunum á X sem hann bendlar Trump við Jeffrey Epstein.