Læknar í Bretlandi hafa nýverið þróað lyf sem framleidd eru úr saur. Lyfið bregst við sýkingum sem ónæmar eru fyrir sýklalyfjum.
Lyfið skolar slæma sýkla sem bera með sér sýkingar út frá þörmunum og skiptir þeim út fyrir blöndu af heilbrigðum þarmabakteríum.
BBC greinir frá því að um sé að ræða nýja meðferð til að takast á við sýkingar sem eru ónæmar fyrir sýklalyfjum, talið er að þær drepi um milljón manns á ári hverju.
Nýlegar rannsóknir hafa sýnt fram á virkni lyfjanna. Auk þess eykur lyfið fjölbreytni þarmaörvera sem getur stuðlað að mótstöðu gegn nýjum sýklum.
Ferlið hefst á að saurgjafar gefa saur í saurbanka og fer hægðasýnið í skoðun og gengið úr skugga hvort að saurinn sé heilbrigður og ómeltur matur fjarlægður.
Því næst frystir bankinn sýnið og þurrkar svo saurinn tekur duftform.
Þetta er geymt í töflu sem við notkun nær til þarmanna þar sem taflan leysist upp og losar saurkennt duftinnihald sitt.