„Snúið við því þið munuð ekki ná að Gasa“

„Til Gretu, gyðingahatara, og félaga hennar, talsmenn Hamas áróðurs, segi …
„Til Gretu, gyðingahatara, og félaga hennar, talsmenn Hamas áróðurs, segi ég skýrt: snúið við því þið munuð ekki ná að Gasa,“ sagði varnarmálaráðherra Ísrael. Samsett mynd/AFP

Ísra­elska hern­um hef­ur verið skipað að hindra að skúta með hjálp­ar­gögn fyr­ir Palestínu­menn nái til Gasa.

Greint var frá því í gær­kvöldi að aðgerðasinn­inn Greta Thun­berg, ásamt ell­efu öðrum aðgerða­sinn­um, væri að nálg­ast hafsvæði Gasa á skút­unni Madleen. Skút­an lagði af stað frá Sikiley í síðustu viku með hjálp­ar­gögn til Palestínu­manna. Talið var að hóp­ur­inn myndi kom­ast í land á Gasa á mánu­dags­morg­un.

„Ég hef skipað hern­um að koma í veg fyr­ir að Madleen–skút­an nái að Gasa,“ sagði Isra­el Katz, varn­ar­málaráðherra Ísra­els, í yf­ir­lýs­ingu.

„Til Gretu, gyðinga­hat­ara, og fé­laga henn­ar, tals­manna Ham­as–áróðurs, segi ég skýrt: Snúið við því þið munuð ekki ná að Gasa.“

Hægt er að fylgj­ast með staðsetn­ingu Madleen í raun­tíma hér.

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert