Bresku Netflix-þættirnir Adolescence verða sýndir í frönskum skólum, að sögn Elisabeth Borne, menntamálaráðherra Frakklands.
Þættirnir hafa hlotið lof fyrir hvernig þeir fjalla um karlmennsku, kvenfyrirlitningu meðal drengja og samfélagsmiðlanotkun ungmenna.
Í lok mars var tilkynnt um að þættirnir yrðu sýndir í skólum í Bretlandi.
Einn framleiðenda þáttanna hefur veitt franska menntamálaráðuneytinu réttinn til að sýna þættina, að sögn Borne.
Sýnd verða brot úr þáttunum fyrir börn 14 ára og eldri.