Alþjóðaheilbrigðismálatofnunin (WHO) hefur framlengt neyðarástand vegna mpox-veirunnar eftir aukingu smita í Vestur-Afríku.
Tedros Adhanom Ghebreyesus, framkvæmdastjóri WHO, tilkynnti framlengingu neyðarástandsins eftir fund sérfræðinga sem tóku eftir aukningu smita í Vestur-Afríku og útbreiðslu veirunnar utan Afríku. Þeir bentu þó einnig á framfarir í nokkrum löndum.
Útbreiðsla faraldursins hófst snemma árs 2024 og síðan þá hafa um 37.000 manns í 25 löndum smitast. 125 hafa látist af völdum veirunnar.
WHO lýsti fyrst yfir alþjóðlegu neyðarástandi vegna mpox-veirunnar í ágúst síðastliðnum. Neyðarnefnd stofnunarinnar fundaði síðastliðinn fimmtudag til að ræða faraldurinn og þar var ákveðið að faraldurinn væri enn alþjóðlegt neyðarástand að sökum áframhaldandi aukningar tilfella, þar á meðal nýlegrar aukningar í Vestur-Afríku, og líklega áframhaldandi óuppgötvuðum smitum í sumum löndum utan Afríku.