Helmingi færri öryggisverðir er Uribe var skotinn

Miguel Uribe liggur þungt haldinn á spítala eftir árásina.
Miguel Uribe liggur þungt haldinn á spítala eftir árásina. AFP/Raul Arbodela

Örygg­is­verðir kól­umb­íska for­setafram­bjóðand­ans Migu­el Uri­be voru mun færri en þeir áttu að vera dag­inn sem hon­um var veitt bana­til­ræði, seg­ir Gusta­vo Pedro, for­seti lands­ins.

Uri­be, sem er 39 ára, var skot­inn tvisvar í höfuðið af 15 ára meint­um leigu­morðingja á kjör­fundi í kól­umb­ísku höfuðborg­inni Bogota á laug­ar­dag. Hann ligg­ur nú þungt hald­inn á sjúkra­húsi.

Pedro seg­ir í færslu sinni á miðlin­um X að á ein­hvern dul­ar­full­an hátt hafi ör­ygg­is­vöðum Uri­bes verið fækkað úr 7 niður í 3 dag­inn sem árás­in átti sér stað.

Victor Mosqu­era, lög­fræðing­ur Uri­bes, sagði í dag að hann hefði lagt fram kæru gegn UNP, rík­is­stofn­un­inni sem sér um ör­yggi hátt­settra ein­stak­linga. Hann sagði jafn­framt að hann hefði ít­rekað, í yfir tutt­ugu skipti á þessu ári, óskað eft­ir auknu ör­yggi fyr­ir skjól­stæðing sinn.

Rann­sókn máls­ins er enn þá á frum­stigi að sögn Pedros.

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert