Mark Rutte, framkvæmdastjóri NATO, kallaði eftir stórbreytingum í varnargetu bandalagsins í dag. Meðal annars hvetur hann til „400 prósenta aukningar“ í loft- og eldflaugavörnum til þess að verja bandalagsríkin gegn Rússum.
„Við sjáum í Úkraínu hvernig Rússar beita skelfingu í lofti, svo við munum styrkja varnir okkar til að vernda lofthelgina,“ sagði hann í ræðu á ráðstefnu hugveitunnar Chatham House í Lundúnum.
Rutte sagði að til þess að viðhalda fælingarmætti NATO þyrfti að auka varnirnar um 400%.
„Staðreyndin er að við þurfum stórbreytingar í sameiginlegum vörnum okkar.“
Rutte fundar með Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, í dag í Downingstræti.
Síðar í mánuðinum fer síðan fram leiðtogafundur NATO í Hollandi.
Ummæli Rutte voru fljótlega fordæmd af rússneskum stjórnvöldum.
„NATO er að sýna sig sem verkfæri árásargirni og átaka,“ sagði Dmítrí Peskov, talsmaður rússneskra stjórnvalda, við blaðamenn í Moskvu.