Tyrkir fordæma stöðvun skútunnar

Utanríkisráðuneyti Ísrael birti þessa mynd af aðgerðarsinnunum á samfélagsmiðlum eftir …
Utanríkisráðuneyti Ísrael birti þessa mynd af aðgerðarsinnunum á samfélagsmiðlum eftir að skútan var stöðvuð. AFP/Utanríkisráðuneyti Ísrael

Yf­ir­völd í Tyrklandi for­dæmdu Ísra­els­menn fyr­ir að stöðva skútu Gretu Thun­berg og ell­efu annarra aðgerðarsinna við Gasa­strönd í nótt.

„Af­skipti ísra­elska hers­ins af Madleen-skút­unni á meðan hún sigldi á alþjóðlegu hafsvæði er skýrt brot á alþjóðalög­um,“ sagði í yf­ir­lýs­ingu Tyrkja. Sagði að um „ógeðfellda árás“ af hálfu rík­is­stjórn­ar Benja­míns Net­anja­hús for­sæt­is­ráðherra Ísra­els væri að ræða.

Madleen-skút­an lagði af stað frá Ítal­íu með hjálp­ar­gögn 1. júní.

Í til­kynn­ingu frá Freedom Flotilla Coaliti­on, sam­tök­un­um sem eiga skút­una, „stöðvuðu ísra­elsk­ar her­sveit­ir skút­una með valdi“ klukk­an 3:02 í nótt, klukk­an 1:02 á ís­lensk­um tíma, er hún nálgaðist Gasa.

Hryðju­verka­sam­tök­in Ham­as for­dæmdu aðgerðir Ísra­els­manna og sögðu í til­kynn­ingu að skút­an hefði verið flutt til ísra­elsku hafn­ar­inn­ar Ashdod.

Koma rík­is­borg­ur­un­um til síns heima

Tyrk­neska ut­an­rík­is­ráðuneytið sagði að tyrk­nesk­ir rík­is­borg­ar­ar hefðu verið um borð. Alls voru tólf um borð frá sjö lönd­um.

Frönsk yf­ir­völd greindu frá því að þau myndu tryggja heim­komu Frakk­anna sem voru um borð. 

Talsmaður Emm­anu­els Macrons Frakk­lands­for­seta sagði að sex fransk­ir rík­is­borg­ar­ar hefðu verið um borð skút­unn­ar og að „þeim verði leyft að snúa aft­ur til Frakk­lands eins fljótt og auðið er“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert