Um 60 handteknir í San Francisco

Frá mótmælunum í Los Angeles í gærkvöldi.
Frá mótmælunum í Los Angeles í gærkvöldi. AFP/Etienne Laurent

Um 60 voru hand­tekn­ir vegna mót­mæla í San Francisco í gær. 

Í gær var greint frá því að Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti hefði skipað her­menn þjóðvarðliðsins til Los Ang­eles vegna mót­mæla þar. 

Mót­mæl­in hafa dreifst til San Frans­isco en mót­mælt er aðgerðum inn­flytj­enda­stofn­un­ar­inn­ar ICE.

Í færslu á X greindi lög­regl­an í San Francisco frá „ólög­legri sam­komu“ þar sem um 60 manns voru hand­tekn­ir, þar á meðal ung­menni. 

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert