Evrópuleiðtogar í áfalli

Ráðamenn frá Evrópu hafa sent frá sér yfirlýsingar í kjölfar …
Ráðamenn frá Evrópu hafa sent frá sér yfirlýsingar í kjölfar skotárásar í Graz. Hér eru lögreglumenn á vettvangi. AFP/Alex Halda

Ráðamenn frá Evr­ópu hafa sent frá sér yf­ir­lýs­ingu vegna skotárás­ar­inn­ar sem fram­in var í Graz í Aust­ur­ríki í morg­un. Tíu eru sögð lát­in í kjöl­far árás­ar­inn­ar.

Friedrich Merz Þýska­landskansl­ari vottaði „vin­um sín­um og ná­grönn­um í Aust­ur­ríki“ samúð, í færslu á sam­fé­lags­miðlin­um X. Hann seg­ist syrgja með þeim.

Í ann­arri yf­ir­lýs­ingu bætti hann við að hann væri miður sín yfir því að ungt fólk hafi látið lífið svona skyndi­lega og sagðist vona að aðstand­end­ur þeirra gætu fundið hugg­un hjá vin­um og fjöl­skyldu.

Þýska­lands­for­seti bregst líka við

Frank- Walter Stein­meier, for­seti Þýska­lands, sendi Al­ex­and­er Van der Bell­en, for­seta Aust­ur­rík­is skila­boð í kjöl­far at­viks­ins. Hann sagðist vera í áfalli yfir því sem átti sér stað og vottaði Al­ex­and­er, sem og aust­ur­rísku þjóðinni, samúð fyr­ir hönd Þjóðverja. Hann sagði þýsku ná­granna þeirra standa með þeim.

Kaja Kallas, ut­an­rík­is­mála­stjóri Evr­ópu­sam­bands­ins, hef­ur einnig sent frá sér yf­ir­lýs­ingu á sam­fé­lags­miðlin­um X. Hún seg­ir hug sinn vera hjá aust­ur­rísku þjóðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert