Lögreglan leitar að tíu manna fjölskyldu sem er saknað

Finnska lögreglan.
Finnska lögreglan. AFP

Finnska lög­regl­an seg­ist hafa fengið meira en 100 ábend­ing­ar eft­ir að hafa leitað upp­lýs­inga um tíu manna fjöl­skyldu sem hef­ur verið týnd í meira en eitt ár, vegna gruns um að for­eldr­arn­ir hafi flúið með börn sín sem voru í um­sjá barna­vernd­ar.

Fjöl­skyld­an, sjö börn fædd á ár­un­um 2007 til 2021, faðir og móðir sem var ófrísk á þeim tíma, hvarf 15. maí í fyrra frá vest­ur­hluta Finn­lands þar sem hún bjó.

Í síðustu viku upp­lýsti lög­regl­an al­menn­ing um málið og óskaði eft­ir upp­lýs­ing­um. Lög­regl­una grun­ar að for­eldr­arn­ir hafi tekið börn sín, sem voru í um­sjá barna­vernd­ar á þeim tíma sem þau hurfu, og tel­ur hún að fjöl­skyld­an hafi yf­ir­gefið landið. Gef­in hef­ur verið út alþjóðleg hand­töku­skip­an á hend­ur for­eldr­un­um.

Finnska lög­regl­an hef­ur greint frá því að hún sé í sam­starfi við lög­reglu­yf­ir­völd á Norður­lönd­um.

„Leit hef­ur verið gerð á nokkr­um stöðum en hingað til hef­ur hún ekki borið neinn ár­ang­ur,“ seg­ir Tony Rauma rann­sókn­ar­lög­reglumaður í yf­ir­lýs­ingu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert