Óeirðir í kjölfar tilraunar til nauðgunar

Mótmælandi gefur lögreglu skýr skilaboð.
Mótmælandi gefur lögreglu skýr skilaboð. AFP/Paul Faith

Mikl­ar óeirðir hafa verið í bæ í Norður-Írlandi síðastliðna tvo daga í kjöl­far hand­töku tveggja ung­linga sem ákærðir hafa verið fyr­ir til­raun til nauðgun­ar.

Tán­ings­pilt­arn­ir tveir eru á fjór­tánda ald­ursári og báðir frá Rúm­en­íu. Við ákær­una brut­ust út mikl­ar óeirðir í bæn­um Ballymena, sem staðsett­ur er 50 kíló­metr­um norðaust­an Belfast. 

Hundruð mót­mæl­enda ollu miklu tjóni á göt­um bæj­ar­ins þar sem þeir meðal ann­ars köstuðu bens­ín­sprengj­um og gler­flösk­um. 

Mikl­ar skemmd­ir

Fimmtán lög­reglu­menn meidd­ust í óeirðunum og liggja sum­ir þeirra á spít­ala. Fjög­ur hús skemmd­ust eft­ir íkveikju og þá hafa glugg­ar á bygg­ing­um verið brotn­ir.

Sjón­ar­vott­ur seg­ir mót­mæl­end­ur hafa herjað á inn­flytj­end­ur, en mikið af inn­flytj­end­um er í sveit­ar­fé­lag­inu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert