Kona lést í Hønefoss í Noregi í morgun eftir að maður lagði hana eggvopni ítrekað á fjölfarinni verslunargötu þar í bænum og lyktaði atlögu mannsins – sem réðst gegn viðbragðsaðilum er þeir komu á vettvang – með því að lögregla skaut hann.
Það var laust fyrir klukkan ellefu í morgun að norskum tíma, níu á Íslandi, að fjöldi manns í miðbæ Hønefoss í fylkinu Buskerud hringdi í neyðarlínu og tilkynnti um átök í verslunargötunni, nokkrum tilkynninganna fylgdu þær upplýsingar að maður væri þar með hníf á lofti.
Sendi lögregla allar tiltækar bifreiðar á vettvang ásamt sjúkraflutningafólki og hittist konan fyrir er að var komið, þungt haldin af sárum sínum. Var hún flutt á sjúkrahús með forgangi, en úrskurðuð látin skömmu eftir að þangað var komið.
„Þetta var ekki tilviljunarkenndur atburður,“ segir Marius Fredriksen, sem stjórnaði aðgerðum lögreglu á vettvangi, við norska ríkisútvarpið NRK, „fólk hefur ekki ástæðu til að óttast að hér verði um frekari hættu að ræða.“
Gefur lögregla það upp í fréttatilkynningu að háttsemi árásarmannsins hafi gefið lögregluþjónum á vettvangi tilefni til að draga upp skotvopn og lyktaði málum svo að hann var skotinn í lærið. Var hann í kjölfarið færður á sjúkrahús og verður yfirheyrður þegar ástand hans leyfir. Honum hefur ekki verið skipaður verjandi á skrifandi stundu.
Lögregla hefur látið uppi að tengsl hafi verið milli árásarmannsins og hinnar myrtu, en kýs að tjá sig ekki nánar um hvernig þeim var háttað.
Mats Henriksen ákæruvaldsfulltrúi lögreglu segir við NRK að vitni á staðnum hafi blandað sér í átökin og þetta staðfestir Gita Narkuviene, sem rekur naglasnyrtistofu við götuna, í samtali við dagblaðið VG. Segir hún að maður hafi stöðvað bifreið sína, hlaupið út úr henni og tekið sér stöðu yfir konunni þar sem hún lá á götunni, til að hindra frekari atlögur árásarmanns.
NRK ræðir við Erik Sunnvoll sem var akandi á leið heim til sín. Segist hann hafa heyrt mikil óp og hávaða frá verslunargötunni áður en lögreglusírenur yfirgnæfðu allt. „Svo heyrði ég háan hvell,“ segir Sunnvoll. Kveðst hann enn fremur hafa séð konuna á götunni og lögreglumann sem lá ofan á henni. „Það var mikið blóð,“ segir hann að lokum.
Að sögn Henriksens ákæruvaldsfulltrúa hefur lögregla fundið vopnið sem maðurinn er grunaður um að hafa beitt og mun fljótlega taka ákvörðun um hvort gæsluvarðhalds verði krafist yfir honum. Ókunnugt er um meiðsli hans að svo búnu.
Svo sem hefð er fyrir þegar norskir lögreglumenn hleypa af skotvopnum sínum við skyldustörf hefur rannsóknarnefnd í innri málefnum lögreglu, spesialenheten for politisaker, hafið rannsókn á atvikinu auk þess sem rannsóknarlögreglan Kripos aðstoðar við vettvangsrannsókn og tryggingu verksummerkja þar. Kemur þetta fram í fréttatilkynningu frá rannsóknarnefndinni.