Tvö þúsund þjóðvarðliðar sendir til viðbótar

Mótmælendur í Los Angeles.
Mótmælendur í Los Angeles. AFP

Banda­ríska varn­ar­málaráðuneytið hef­ur staðfest að Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti hafi ákveðið að senda 2.000 þjóðvarðliða til viðbót­ar til að reyna koma bönd­um á fjölda­mót­mæl­in sem staðið hafa yfir í Los Ang­eles síðustu daga.

Mót­mæli gegn inn­flytj­enda­stefnu Banda­ríkja­stjórn­ar héldu áfram í Los Ang­eles í gær, fjórða dag­inn í röð.

Í gær­kvöld til­kynnti stjórn Trumps að hún muni senda 700 banda­ríska land­gönguliða til borg­ar­inn­ar og er þeim ætlað að koma til aðstoðar við þjóðvarðliðið.

Lögreglumenn í Los Angeles í gær.
Lög­reglu­menn í Los Ang­eles í gær. AFP

CNN og The New York Times greina frá því að lög­regl­an í Los Ang­eles hafi hand­tekið fjölda mót­mæl­anda og flutt þá um borð í rút­ur en lög­regl­an hafði varað mót­mæl­end­ur við því að þeir yrðu hand­tekn­ir ef þeir færu ekki fyr­ir­mæl­um lög­reglu um að yf­ir­gefa göt­ur borg­ar­inn­ar.

Gary New­som, rík­is­stjóri í Kali­forn­íu, ætl­ar að kæra rík­i­s­tjórn Banda­ríkj­anna fyr­ir að senda her­menn þjóðvarðliðsins til Los Ang­les án hann samþykk­is en hann greindi frá þessu á sam­fé­lags­miðlum í gær.

New­som greindi frá því í gær­kvöld að hann hygg­ist senda 800 lög­reglu­menn til viðbót­ar til Los Ang­eles vegna óeirðanna.

Færsla New­som á sam­fé­lags­miðlin­um X deildi mynd­um af her­mönn­um liggj­andi þétt stam­an á gólfi bygg­ing­ar í Los Ang­les.

„Þú send­ir þá án eldsneyt­is, mat­ar, vatns eða svefn­pláss,“ skrif­ar hann og bæt­ir við: – „Ef ein­hver kem­ur fram við her­menn okk­ar af óvirðingu, þá ert það þú, Don­ald Trump.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert