Kviðdómur hefur sakfellt fyrrverandi kvikmyndaframleiðandann Harvey Weinstein fyrir kynferðisbrot gegn kvikmyndaframleiðandanum Miriam Haley. Dómurinn sýknaði Weinstein hins vegar fyrir aðra sambærilega ásökun um kynferðisbrot gegn annarri konu.
Dómari í málinu á eftir að ákveða refsingu í málinu.
Konurnar tvær kærðu Weinstein fyrir kynferðisbrot og nauðgun. Hann var sakfelldur fyrir brotin árið 2020 en áfrýjunardómstóll felldi dóminn úr gildi.
Var það gert á þeim forsendum að dómsmeðferðin hafi ekki verið sanngjörn, þar sem konur sem Weinstein var ekki sakaður um að hafa brotið á fengu að bera vitni. Endurupptaka í málinu hófst fyrr í þessum mánuði.