Bandaríska þjóðin er klofin í garð ákvörðunar Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um að senda þjóðvarðlið og landgönguliða til Los Angeles til að brjóta á bak aftur óeirðir í tengslum við mótmæli vegna aukinnar hörku í brottvísun ólöglegra innflytjenda.
Þetta kemur fram í nýlegri könnun Washington Post.
Þar kemur fram að 41% Bandaríkjamanna styðji aðgerðir Trumps en 44% eru mótfallnir aðgerðum Bandaríkjaforseta. Þá taka 15% ekki afstöðu.
Repúblikanar eru í miklum meirihluta þeirra sem styðja aðgerðirnar en 86% þeirra styðja þær. Þá eru 76% demókrata mótfallnir aðgerðunum. 48% óflokksbundinna eru mótfallnir aðgerðum Trumps.
Í könnuninni var einnig spurt hvort þátttakendur væru sammála málstað mótmælanna. Þá voru niðurstöðurnar enn jafnari, 40% þátttakenda voru sammála málstaðnum en 39% ósammála.
Meira en þúsund Bandaríkjamenn tóku þátt í könnun Washington Post, þar af tvö hundruð frá Kaliforníu en þeir voru mun mótfallnari aðgerðunum en svarendur frá öðrum ríkjum.