Heilbrigðisyfirvöld í Indlandi segja einn farþega hafa lifað flugslysið sem varð í morgun af. 242 farþegar voru í vélinni er hún hrapaði.
Að sögn talsmanns heilbrigðisráðuneytisins í Indlandi, Dhananjay Dwivedi, er nú verið að huga að farþeganum á sjúkrahúsi en ekki voru veittar frekari upplýsingar.
Flugfélagið Air India hefur staðfest að 169 þeirra voru indverskir ríkisborgarar, 53 breskir, sjö portúgalskir og einn kanadískur. Þjóðerni þeirra tólf sem voru í áhöfn flugvélarinnar hefur ekki verið tilkynnt.
Flugvélin var á leið frá Ahmedabad í Indlandi á Gatwick-flugvöll í Lundúnum.
Breska ríkisstjórnin hefur tilkynnt að sent verði teymi frá Bretlandi sem muni aðstoða indversk yfirvöld við rannsókn á flugslysinu.