„Hann ætti að þakka mér“

Donald Trump Bandaríkjaforseti.
Donald Trump Bandaríkjaforseti. AFP

Allt hef­ur verið með kyrr­um kjör­um í Los Ang­eles und­an­farna tvo daga að sögn Don­alds Trumps Banda­ríkja­for­seta eft­ir að þjóðvarðlið og sjó­liðar voru send­ir til borg­ar­inn­ar til að brjóta mót­mæl­in á bak aft­ur.

Mót­mæl­in, sem hóf­ust í síðustu viku, hafa verið mjög um­fangs­mik­il. Fólk hef­ur meðal ann­ars kveikt í bíl­um og kastað grjóti á lög­reglu­menn.

„Okk­ar frá­bæru þjóðvarðliðar, með smá hjálp frá land­gönguliðum, settu lög­regl­una í Los Ang­eles í þá stöðu að geta sinnt starfi sínu af skil­virkni,“ skrifaði Trump í færslu á sam­fé­lags­miðli sín­um Truth Social. Hann bætti við að án herliðsins væri borg­in „verri glæpa­vett­vang­ur en við höf­um séð í mörg ár“.

Trump fyr­ir­skipaði að þúsund­ir þjóðvarðliða og um 700 land­gönguliðar yrðu send­ir til borg­ar­inn­ar, þrátt fyr­ir mót­mæli Gavin New­som, demó­krata og rík­is­stjóra Kali­forn­íu. Þetta er í fyrsta sinn í ára­tugi sem for­seti Banda­ríkj­anna gríp­ur til slíkra aðgerða í ríkj­um án samþykk­is stjórn­valda þar.

Í færslu sinni sagði Trump að New­som „hefði al­gjör­lega misst tök­in á ástand­inu“. Hann bæt­ir við að í stað þess að reyna að rétt­læta mis­tök sín og van­hæfni ætti New­son að þakka Trump fyr­ir að bjarga hon­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert