Öldungadeildarþingmaður borinn út af fundi

.
. AFP/Patrick T. Fallon

Alex Padilla, öld­unga­deild­arþing­manni demó­krata í Kali­forn­íu, var gert að yf­ir­gefa blaðamanna­fund Kristi Noem heima­varn­ar­ráðherra í Los Ang­eles í kvöld.

Tveir menn í skot­held­um vest­um merkt­um al­rík­is­lög­regl­unni (FBI) þurftu að bera öld­unga­deild­arþing­mann­inn út af fund­in­um með valdi vegna óláta í Padilla.

Fund­ur­inn var hald­inn í kjöl­far mik­illa mót­mæla í Los Ang­eles-borg í Kali­forn­íu. Padilla á að hafa truflað fund­inn og sagst hafa verið með spurn­ingu fyr­ir Kristi Noem. Hon­um tókst ekki að bera er­indi sitt upp en sagði til nafns og stöðu sinn­ar sem öld­unga­deild­arþingmaður.

New­som ósátt­ur við Trump

Rík­is­stjóri Kali­forn­íu, Gavin New­son, hef­ur mót­mælt aðgerðum Don­alds Trumps Banda­ríkja­for­seta í rík­inu vegna mót­mæl­anna, en Trump sendi 2000 þjóðvarðarliða og 700 land­gönguliða til borg­ar­inn­ar til að ná tök­um á óeirðunum.

Hann gef­ur lítið fyr­ir yf­ir­lýs­ing­ar New­son.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert