Óttast að fjöldi manns hafi farist í flugslysi

Myndin er frá vettvangi slyssins.
Myndin er frá vettvangi slyssins. AFP

Flug­vél hrapaði við Ah­meda­bad-flug­völl­inn í Indlandi nú fyr­ir skömmu, ótt­ast er að mik­ill fjöldi hafi far­ist. 

Flug­vél­in var á leið frá Ah­meda­bad í Indlandi á Gatwick-flug­völl í Lund­ún­um. 

Flug­vél­in sem fórst var á veg­um flug­fé­lags­ins Air India sem er næst stærsta flug­fé­lag Ind­lands. Um var að ræða flug­vél af gerðinni Boeing 787 Dreaml­iner. 

242 farþegar voru um borð í vél­inni. 

Mik­ill reyk­ur berst nú frá þeim stað þar sem flug­vél­in hrapaði en mynd­skeiðum frá vett­vangi hef­ur verið deilt á sam­fé­lags­miðlum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert