Borgaryfirvöld víðsvegar í Bandaríkjunum undirbúa sig fyrir umfangsmikil mótmæli gegn ríkisstjórn Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, sem eiga að fara fram næstkomandi laugardag, sama dag og Trump heldur hersýningu í Washington til að fagna 250 ára afmæli bandaríska hersins. Sjálfur fagnar forsetinn 79 ára afmæli sínu á laugardaginn. CNN greinir frá.
Mikil mótmæli hafa staðið yfir í Los Angeles í vikunni.
Yfir 1.800 viðburðir undir heitinu „Engir konungar“ eða „No Kings“ hafa verið skipulagðir um öll Bandaríkin, af hreyfingunni 50501, undir slagorðinu „Dagur andspyrnu“. Nafnið stendur fyrir „50 mótmæli, 50 fylki, 1 hreyfing“, samkvæmt heimasíðu hópsins.
„Spillingin er komin úr böndunum. Engin hásæti. Engar kórónur. Engir konungar,“ segir á vef hreyfingarinnar.
Skipuleggjendur leggja áherslu á friðsamleg mótmæli og krefjast þess að þátttakendur forðist árekstra, fylgi lögum og reglum og mæti vopnlausir.
Hersýningin í Washington er sögð sú stærsta í áratugi og kostnaðurinn gæti hlaupið á tugum milljóna dollara. Vegaframkvæmdir í miðborginni hófust í byrjun júní til að undirbúa götur fyrir þungan herbúnað.
Washington, D.C. verður ekki meðal borga þar sem „No Kings“ mótmælin fara fram. Það er viljandi gert, að sögn samtakanna, til að beina athyglinni frá hersýningu Trump og að mótmælum um land allt.
Greg Abbott, ríkisstjóri Texas, greindi frá því fyrr í vikunni að þjóðvarðlið ríkisins verði kallað út fyrir mótmæladaginn, þar á meðal í San Antonio þar sem stór mótmæli eru fyrirhuguð.