Gert margar árásir á stærstu kjarnorkustöð Írana

00:00
00:00

Ísra­el­ar hófu árás­ir á Nataz kjarn­orku­stöðina sem staðsett er neðanj­arðar. Natanz er stærsta og af­kasta­mesta kjarn­orku­stöð Írana. Fyrstu árás­irn­ar á stöðina voru í morg­un en árás­in er hluti árása Ísra­els­hers á Íran sem hóf­ust í nótt. Árás­irn­ar beind­ust að bæði hernaðar- og kjarn­orku­innviðum í Íran.

Berouz Kamal­vandi, talsmaður kjarn­orku­stofn­un­ar Íran, seg­ir eng­ar skemmd­ir hafa orðið á Natanz-stöðinni í árás­um Ísra­els­hers í morg­un. Þar að auki hef­ur ekk­ert mann­fall orðið við stöðina.

Ísra­els­her held­ur árás­um áfram

Ísra­els­her gaf hins veg­ar frá sér yf­ir­lýs­ingu þar sem fram kem­ur að Natanz-kjarn­orku­stöðin hafi hlotið al­var­leg­ar skemmd­ir í árás­un­um. Íran hef­ur burði til þess að fram­leiða mikið magn kjarn­orku­vopna úr fram­leiðslu úr­an­íums í stöðinni.

Íran­ir hafa þó áður gefið það út að þeir ætli sér ekki að fram­leiða kjarn­orku­vopn, en fram­leiðsla þeirra á úr­an­íumi næg­ir til þess að búa til fjöl­mörg kjarn­orku­vopn.

Alþjóðakjarn­orku­stofn­un­in (IAEA) fylg­ist náið með aðstæðum í Íran og seg­ir þær vera uggvæn­leg­ar. Íran­ir hafa gefið það út að geisla­virkni hafi ekki auk­ist í kjöl­far árás­anna á kjarn­orku­stöðvar þar í landi.

Íran­ir hafa svarað fyr­ir sig og hafið gagnárás­ir á Ísra­el.

Leiðtog­ar víða um heim hafa sent frá sér yf­ir­lýs­ing­ar um árás­ina og hvetja bæði ríki til þess að stíga til baka.

Árásir Ísraela á Natanz kjarnorkustöðina.
Árás­ir Ísra­ela á Natanz kjarn­orku­stöðina. AFP
mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert