Íranar hefja árásir að nýju

Íranir gerðu eldflaugaárás á Tel Avív í kvöld.
Íranir gerðu eldflaugaárás á Tel Avív í kvöld. AFP/Jack Guez

Íran­ar hófu nýja um­ferð eld­flauga­árása á Ísra­el fyr­ir skömmu. Loft­varnaflaut­ur óma nú í borg­un­um Tel Avív og Jerúsalem.

„Ný um­ferð ír­anskra eld­flauga­árása á síon­ist­a­lýðveldið er nú haf­in frá [ír­önsku borg­un­um] Teher­an og Kerm­ans­hah,“ sagði í frétt ír­anska rík­is­sjón­varps­ins.

Þá hef­ur ísra­elski her­inn hvatt Ísra­ela til að leita skjóls vegna árás­anna.

„Loft­varnaflaut­ur hljómuðu á nokkr­um svæðum um allt Ísra­el í kjöl­far þess að eld­flaug­ar frá Íran sem stefndu í átt að Ísra­els­ríki greind­ust,“ sagði her­inn í yf­ir­lýs­ingu.

„Á þess­ari stundu er ísra­elski flug­her­inn að vinna að því að grípa inn í og gera árás­ir þar sem nauðsyn kref­ur til að út­rýma ógn­inni,“ sagði í yf­ir­lýs­ing­unni.

Um hefnd­arárás­ir að ræða

Árás­ir Írana eru gerðar til að hefna fyr­ir á­rás­ir á her- og kjarn­orku­stöðvar víða um Íran sem hóf­ust í nótt.

Fjöldi hátt­settra ír­anskra her­manna og vís­inda­manna hef­ur látið lífið í árás­un­um. Ísra­elsk yf­ir­völd hafa þó greint frá því að „eins og er séu eng­in áform um að fella stjórn­mála­leiðtoga í Íran“.

Íran­ar hafa kallað árás Ísra­ela „stríðsyf­ir­lýs­ingu“.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert