Ísrael og Íran: Hvað vitum við?

Ísraelsher hóf árásir á Íran í nótt og í framhaldinu …
Ísraelsher hóf árásir á Íran í nótt og í framhaldinu hófu Íranir drónaárásir á Ísrael. AFP

Ísra­els­her gerði árás­ir á Íran í nótt en sam­kvæmt ísra­elsk­um stjórn­völd­um var árás­un­um beint að kjarn­orku­innviðum Írans sem og hernaðarleg­um innviðum.

Íran­ir hófu í fram­haldi um­fangs­mikl­ar dróna­árás­ir á Ísra­el. Talið er að Íran­ir hafi beitt meira en 100 drón­um sem Ísra­els­her skaut niður og hef­ur neyðarástandi verið lýst yfir í Ísra­el.

Hátt­sett­ir menn féllu

Hossein Salami, yf­ir­maður ír­anska bylt­ing­ar­varðar­ins og Mohammad Bag­heri hers­höfðingi féllu í árás­un­um ásamt sex kjarn­orku­vís­inda­mönn­um.

Árás­ir Ísra­els hóf­ust klukk­an 03:30 að staðar­tíma eða í kring­um miðnætti. Sam­kvæmt ír­önsk­um fjöl­miðlum urðu íbúðahverfi meðal ann­ars fyr­ir árás­um.

Nokkr­um klukku­stund­um síðar var til­kynnt um spreng­ingu við Natanz-kjarn­orku­verið, sem er staðsett um 225 kíló­metra suður af höfuðborg­inni. Geisl­un­arstig jókst ekki á Natanz-svæðinu við spreng­ing­una.

Mark­viss hernaðaraðgerð gegn ír­önsku ógn­inni

Benja­mín Net­anja­hú, for­sæt­is­ráðherra Ísra­els, sagði árás­irn­ar vera „mark­vissa hernaðaraðgerð til að draga úr ír­önsku ógn­inni við „sjálfa til­veru Ísra­els­rík­is.“

Net­anja­hú sagði að árás­irn­ar myndu halda áfram svo lengi sem þess þurfi.

„Á und­an­förn­um mánuðum hef­ur Íran tekið skref sem það hef­ur aldrei tekið áður, skref til að vopn­væða auðgað úran. Ef Íran­ir verða ekki stöðvaðir geta þeir fram­leitt kjarn­orku­vopn á mjög stutt­um tíma. Það gæti verið ár eða jafn­vel inn­an nokk­urra mánaða. Þetta er skýr og yf­ir­vof­andi ógn við til­veru Ísra­els,“ sagði Net­anja­hú í ræðu sinni í nótt.

Hann þakkaði einnig Don­ald Trump í ræðu sinni fyr­ir að tak­ast á við kjarn­orku­áætlun Írans.

Banda­rík­in þvo hend­ur sín­ar af árás­un­um

Banda­rík­in sverja af sér að hafa tekið þátt í árás­un­um. Marco Ru­bio ut­an­rík­is­ráðherra Banda­ríkj­anna seg­ir Banda­rík­in ekki hafa átt neinn þátt í árás­un­um eða und­ir­bún­ingi þeirra og ekki veitt Ísra­els­her aðstoð. Sagði hann helsta for­gangs­atriði Banda­ríkj­anna vera að vernda banda­ríska her­menn á svæðinu.

Ut­an­rík­is­ráðuneyti Írans sagði að Íran­ir myndu ekki hika við að verja full­veldi Írans á þann hátt sem þeir telja viðeig­andi. Í yf­ir­lýs­ingu ráðuneyt­is­ins voru aðgerðir Ísra­el kallaðar árás­ar­gjörðir og einnig sagt að rík­is­stjórn Banda­ríkj­anna verði einnig lát­in bera ábyrgð á árás­inni.

Hver er kjarn­orku­áætlun Írans?

Íran hef­ur lengi haldið því fram að kjarn­orka sé ein­göngu til borg­ara­legra nota í land­inu. Nokk­ur kjarn­orku­ver eru víðs veg­ar um Íran.

Mörg ríki, ásamt alþjóðlegu kjarn­orku­eft­ir­lits­stofn­un­inni (IAEA), eru hins veg­ar ekki sann­færð um að áætlan­ir Írans séu ein­göngu til borg­ara­legra nota.

Fyrr í vik­unni lýsti stjórn IAEA því yfir að Íran hefði brotið gegn skuld­bind­ing­um sín­um um út­breiðslu kjarn­orku­vopna í fyrsta skipti í 20 ár. Sam­kvæmt stofn­un­inni hef­ur Íran ekki veitt næg­ar upp­lýs­ing­ar um birgðir sín­ar af auðguðu úrani.

Í kjöl­farið var birt skýrsla frá IAEA sem seg­ir að Íran hefði auðgað úran upp í 60% hrein­leika, sem er næst­um því nóg af vopn­hæfu úrani til að búa til níu kjarn­orku­sprengj­ur.

BBC

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert