Netanjahú: Meira á leiðinni

Benjamin Netanyahu forsætisráðherra Ísraela segir frekari árásir væntanlegar.
Benjamin Netanyahu forsætisráðherra Ísraela segir frekari árásir væntanlegar. AFP/Evelyn Hockstein

For­sæt­is­ráðherra Ísra­els, Benjam­ín Net­anja­hú, seg­ir frek­ari árás­ir vænt­an­leg­ar í ávarpi eft­ir gagnárás Írana fyrr í kvöld. 

„Það er meira á leiðinni, stjórn­völd í Íran vita ekki hvað skall á, eða mun skella á. Þau hafa aldrei verið veik­ari,“ sagði Net­anja­hú í ræðu sinni í kvöld.

Bein­ist ekki gegn al­menn­um borg­ur­um í Íran

For­sæt­is­ráðherr­ann tók jafn­framt fram að árás­ir Ísra­els séu ekki ætlaðar gegn al­menn­um borg­ur­um í Íran held­ur stjórn­völd­um Írans. 

Þá seg­ir Net­anja­hú að mark­mið árás­anna sé að koma í veg fyr­ir kjarn­orku- og skot­flauga­ógn stjórn­valda í Íran ógni Ísra­el í framtíðinni.

Net­anja­hú ávarpaði ír­önsku þjóðina beint í ræðu sinni og sagði þetta vera tæki­færi þjóðar­inn­ar til að láta rödd sína heyr­ast. 

Mikill viðbúnaður er á götum Tel Avív vegna árása Írana.
Mik­ill viðbúnaður er á göt­um Tel Avív vegna árása Írana. AFP/​Jack Guez
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert