Hermann Nökkvi Gunnarsson
Forsætisráðherra Ísraels, Benjamin Netanjahú, hefur gefið út yfirlýsingu í kjölfar árása Ísraelshers á kjarnorkuinnviði víða um Íran. Hann gefur í skyn að árásirnar muni halda áfram næstu daga.
„Fyrir nokkrum augnablikum hóf Ísrael aðgerðina Rísandi ljón, markvissa hernaðaraðgerð til að vinda ofan af íranskri ógn sem beinist að Ísrael. Þessi aðgerð mun halda áfram eins marga daga og þarf til að stöðva útbreiðsluna,“ segir hann.
Tugir ísraelskra orrustuþotna tóku þátt í „fyrsta áfanga“ árása á kjarnorkuskotmörk á mismunandi svæðum í Íran, laust eftir miðnætti að íslenskum tíma.
„Á undanförnum mánuðum hefur Íran tekið skref sem það hefur aldrei áður tekið, skref til að vopnvæða auðgað úran,“ segir Netanjahú.
„Ef ekkert er að gert, gæti Íran framleitt kjarnorkuvopn á mjög skömmum tíma. Það gæti verið ár. Það gæti verið innan nokkurra mánaða, minna en ár. Þetta er skýr og yfirvofandi hætta sem steðjar að sjálfri tilveru Ísraels.“