Breski ríkisborgarinn Vishwashkumar Ramesh, eini farþeginn sem komst lífs af í flugslysinu á Indlandi í gær, komst út í gegnum gat á skrokki vélarinnar.
„Mér tókst að losa mig úr beltinu, notaði fótinn til að ýta mér í gegnum gatið og skreið út,“ sagði Ramesh við indverska ríkisfjölmiðilinn DD News.
Ramesh sat í sæti 11A í Boeing 787 flugvélinni sem var á leið til Lundúna þegar hún hrapaði skömmu eftir flugtak í Ahmedabad í vesturhluta Indlands í gær.
Ramesh er búsettur í Leicester, er giftur og á fjögurra ára son og segist hann vera afar þakklátur fyrir að vera á lífi.
Indversk stjórnvöld tilkynntu í gær að allir aðrir farþegar og áhöfn hefðu farist í slysinu. Þar á meðal voru 169 indverskir ríkisborgarar og 52 breskir ríkisborgarar. Yfir 200 hafa fundist látnir á vettvangi og stendur leit enn yfir.
Ramesh sagði að ljósin í flugvélinni hefðu byrjað að flökta skömmu eftir flugtak. Í fimm til tíu sekúndur fannst honum eins og vélin væri föst í loftinu. „Ljósin byrjuðu að flökta og urðu græn og hvít. Skyndilega skall vélin á byggingu og sprakk.“
Farþegi sem var í vélinni birti myndband á samfélagsmiðlum sem sýnir að ekkert hafi virkað í vélinni. Ekki var hægt að nota skjáinn, slökkt var á loftkælingu og engir takkar virkuðu.
Chilling video shows 'nothing was working' on Air India flight just before crash. pic.twitter.com/gVJIQVS4As
— Daily Mail (@DailyMail) June 12, 2025
Myndband sem deilt var á samfélagsmiðlum sýnir Ramesh ganga í átt að sjúkrabíl. Ótrúlegt þykir að hann hafi komist lífs af.
Here is Ramesh Vishwas Kumar, seated on 11A in the ill fated Air India flight, walking out ALIVE from the fireball.
— Sangha/ਸੰਘਾ/संघा/سنگھا (@FarmStudioz) June 12, 2025
It is just like Bruce Willis’ character, the lone survivor in a catastrophic train crash in M. Night Shyamalan’s movie Unbreakable (2000).pic.twitter.com/hwkBQ1KfeG
Ekki er vitað hvað olli því að flugvélin hrapaði. Svarti kassi vélarinnar fannst á slysstað í dag og mun það geta veitt rannsakendum frekari upplýsingar.