Sprengjum rignir yfir Tel Avív

Eldar loga í blokk í Tel Avív.
Eldar loga í blokk í Tel Avív. AFP/Jack Guez

Fjöldi eld­flauga hef­ur lent á hús­um í borg­inni Tel Avív í Ísra­el í kvöld. Íran­ir gera nú harða gagnárás á Ísra­el til að hefna fyr­ir ás­rás­ir á landið í nótt.

Fimm hafa slasast í árás­um Írans hingað til að sögn viðbragðsaðila í Tel Avív. Mik­il spreng­ing varð í borg­inni nú fyr­ir skömmu. 

Loft­varn­ir Ísra­els­rík­is virðast duga skammt í þess­ari árás Írans. 

Ayatollah Ali Khamenei, æðsti klerk­ur Írans, hét hefnd­um í mynd­bandsávarpi sem birt var í Íran um það leyti sem gagnárás Írans hófst. 

„Þið megið ekki halda að þeir ráðist á okk­ur og að þetta sé búið. Nei. Þeir byrjuðu þetta og hófu þetta stríð. Við mun­um ekki leyfa þeim að sleppa frá þess­um glæp sem þeir frömdu,“ sagði Khamenei.

Hér fyr­ir neðan má fylgj­ast með beinni út­send­ingu frétta­veit­unn­ar Reu­ters frá Tel Avív.

Sprengjum hefur rignt yfir borgina í kvöld.
Sprengj­um hef­ur rignt yfir borg­ina í kvöld. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert