Flugskeytaárásir Írana á Ísrael héldu áfram í morgun. Að sögn ísraelskra viðbragðsaðila létust tveir og 19 særðust þegar flugskeyti lenti á íbúðasvæði snemma í morgun.
Með árásunum eru Íranar að hefna fyrir árásir Ísraela á her- og kjarnorkustöðvar víða um Íran.
Tveir háttsettir íranskir hershöfðingjar voru drepnir í árás Ísraela. Þessu greindi íranska ríkissjónvarpið frá í morgun. Ísraelar hafa einnig haldið áfram árásum sínum á her- og kjarnorkustöðvar.
Írönsk stjórnvöld hafa beðið borgara sína um að sameinast í því að verja landið. Á sama tíma hefur Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hvatt almenning í Íran til að hlusta ekki á ríkisstjórn sína heldur berjast gegn henni.
Loftvarnarflautur og sprengingar heyrðust víða um Ísrael í nótt. Margir íbúar leituðu skjóls í sprengjubyrgjum.
Ísraelar segja að tugum flugskeyta hafi verið skotið á landið og einhver þeirra voru skotin niður.
Íranar segjast hafa í árásum sínum beint sjónum sínum að tugum skotmarka í Ísrael.