Íranir hefja árásir á Ísrael að nýju

Frá loftárásum Írana á borgina Jerúsalem.
Frá loftárásum Írana á borgina Jerúsalem. AFP

Stig­mögn­un í átök­um Írans og Ísra­els hef­ur haldið áfram síðasta sól­ar­hring­inn en Íran hef­ur nú hafið nýja um­ferð loft­árása á Ísra­el. Aldrei hafa átök ríkj­anna tveggja verið harðvítugri en nú.

Fyrr í kvöld gáfu ísra­elsk yf­ir­völd út að þau væru sam­tím­is að vinna að því að stöðva nýja skot­hríð eld­flauga frá Íran og fram­kvæmdi árás­ir á „hernaðarleg skot­mörk í Teher­an“.

Ísra­elski her­inn sagði borg­ur­um að fylgj­ast með loft­árás­ar­viðvör­un­um og „fara í varið rými og vera þar þar til annað verður til­kynnt“.

Íran til­kynnti á sama tíma um „nýja bylgju“ árása sem bein­ist að Ísra­el en sam­kvæmt ír­anska rík­is­sjón­varpinnu eru aðal skot­mörk árás­ar­inn­ar borg­irn­ar Haifa og Tel Avív.

„Við mun­um ráðast á hverja ein­ustu stöð“

Sendi­herra Írans hjá Sam­einuðu þjóðunum hef­ur sagt að 78 manns hefðu lát­ist og 320 særst í fyrstu bylgju ísra­elskra árása í gær.

Þá hafa ísra­elsk yf­ir­völd gefið út að þrír hefðu lát­ist og 76 særst í hefnd­arárás­um Írans á Jerúsalem og Tel Avív í nótt en í kjöl­far þeirra sór Net­anja­hú þess eið að halda árás­um á Íran áfram

„Við mun­um ráðast á hverja ein­ustu stöð, hvert ein­asta skot­mark ayatollah-stjórn­ar­inn­ar,“ sagði hann í mynd­bands­skila­boðum og hótaði frek­ari aðgerðum „á kom­andi dög­um“.

Hann bætti við að her­ferð Ísra­els hefði veitt kjarn­orku­áætlun Írans „al­vöru högg“ og hélt því fram að hún nyti „skýrs stuðnings“ Don­alds Trump, for­seta Banda­ríkj­anna.

M;ta ekki til viðræðna

Isra­el Katz, varn­ar­málaráðherra Net­anya­hu, varaði þá við því að „Teher­an muni brenna“ ef það héldi áfram að ráðast á óbreytta borg­ara í Ísra­el.

Masoud Pezes­hki­an for­seti Írans svaraði því þá til að „áfram­hald­andi árás­ir síon­ista muni mæta harðari og öfl­ugri viðbrögðum frá ír­anska hern­um“.

Sam­kvæmt yf­ir­lýs­ingu frá skrif­stofu hans for­dæmdi Pezes­hki­an einnig „óheiðarleika“ Banda­ríkja­stjórn­ar sem styður aðgerðir Ísra­els á meðan hún tek­ur þátt í kjarn­orku­viðræðum við Íran.

Ný lota kjarn­orku­viðræðna milli Banda­ríkj­anna og Írans átti að fara fram á morg­un en hef­ur nú verið af­lýst því ír­önsk yf­ir­völd segj­ast ekki geta samið á meðan landið er und­ir árás­um frá Ísra­el.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert