Pútín til í friðarviðræður

Trump og Pútín ræddu saman í síma í dag.
Trump og Pútín ræddu saman í síma í dag. AFP/Drew Angerer/Gavriil Grigorov

Vla­dímír Pútín Rúss­lands­for­seti sagði banda­rísk­um starfs­bróður sín­um, Don­ald Trump, fyrr í dag að Rúss­ar væru reiðubún­ir að hefja friðarviðræður við Úkraínu að nýju eft­ir 22. júní en þá er áformað að fanga­skipt­um ríkj­anna verði lokið.

Pútín og Trump áttu í dag fimmta sím­talið sín á milli síðan sá síðar­nefndi tók við embætti í byrj­un árs en Trump hef­ur haft það að mark­miði að end­ur­vekja sam­skipti banda­rískra og rúss­neskra yf­ir­valda.

Í yf­ir­lýs­ingu frá rúss­nesk­um yf­ir­völd­um kem­ur fram að í sím­tal­inu hafi „báðir leiðtog­ar lýst ánægju sinni með per­sónu­leg sam­skipti þeirra“.

Þá ræddu þeir einnig átök­in milli Írans og Ísra­els, sem fara nú stig­magn­andi.

Rúss­land er árás­araðil­inn

Volodimír Selenskí, for­seti Úkraínu, tjáði sig um þenn­an síma­fund Pútíns og Trumps á sam­fé­lags­miðlin­um X en minnt­ist ekki á hvort Úkraína myndi samþykkja að hefja friðarviðræður á ný, held­ur sagði aðeins að „fanga­skipt­un­um verði lokið og málsaðilar muni ræða næstu skref.“

Þá hvatti hann banda­rísk yf­ir­völd til að „breyta tón­in­um“ í sam­skipt­um sín­um við Rúss­land og sagði þau vera „of hlý“ og myndu ekki hjálpa til við að binda enda á átök­in Úkraínu og Rúss­lands.

„Öll merki um minnk­andi aðstoð, eða það að meðhöndla Úkraínu og Rúss­land sem jafn­ingja, er mjög órétt­látt. Rúss­land er árás­araðil­inn. Þeir hófu þetta stríð. Þeir vilja ekki binda enda á það,“ sagði for­set­inn á X.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert