Þrír kjarnorkuvísindamenn til viðbótar féllu

Skilti með myndum af írönskum hershöfðingjum og kjarnorkuvísindamönnum sem féllu …
Skilti með myndum af írönskum hershöfðingjum og kjarnorkuvísindamönnum sem féllu í árásum Ísraela. AFP/Atta Kenare

Ísra­el­ar hafa drepið þrjá ír­anska kjarn­orku­vís­inda­menn til viðbót­ar, að sögn ír­anska rík­is­sjón­varps­ins. Þar með hafa níu slík­ir vís­inda­menn fallið í árás­um Ísra­ela að und­an­förnu.

„Þrír af kjarn­orku­vís­inda­mönn­um þjóðar­inn­ar, Ali Beka­ei Karimi, Man­sour Asgari og Sa­eed Borji dóu píslar­vætt­is­dauða í hryðju­verka­árás Ísra­els,“ sagði í frétt sjón­varps­ins.

Áður höfðu ír­ansk­ir fjöl­miðlar greint frá því að sex slík­ir vís­inda­menn hefðu fallið í árás Ísra­els.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert