Tíu látnir eftir mikil flóð í Texas

Flóð í Kentucky-ríki í Bandaríkjunum fyrr á árinu.
Flóð í Kentucky-ríki í Bandaríkjunum fyrr á árinu. AFP/Brett Carlsen

Í það minnsta 10 manns hafa lát­ist í mikl­um flóðum í Texas í Banda­ríkj­un­um. Fjölda fólks er saknað og stend­ur björg­un­ar­starf yfir í rík­inu. 

Borg­ar­yf­ir­völd í San Ant­onio segja viðbragðsaðila hafa farið í yfir 86 björg­un­araðgerðir vegna flóðanna. 

Mikl­ar rign­ing­ar hafa verið á svæðinu frá því á fimmtu­dag og hafa þær valdið miklu flóði á göt­um og hafa bíl­ar runnið út af veg­um.

„Hug­ur okk­ar er hjá fjöl­skyld­um þeirra sem hafa misst ást­vin í flóðunum í vik­unni og hjá þeim fjöl­skyld­um sem leita áfram að ást­vin­um sín­um,“ seg­ir Ron Niren­berg, borg­ar­stjóri San Ant­onio, í færslu á sam­fé­lags­miðlin­um X. Hann þakk­ar einnig viðbragðsaðilum fyr­ir störf sín. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert