Reiðubúnir að halda sameiginlegar heræfingar

Emmanuel Macron Frakklandsforseti á blaðamannafundi á Grænlandi í dag.
Emmanuel Macron Frakklandsforseti á blaðamannafundi á Grænlandi í dag. AFP

Emm­anu­el Macron Frakk­lands­for­seti seg­ir Evr­ópu­sam­bandið vera ein­huga um að Græn­land sé ekki til sölu.

Macron heim­sótti Græn­land í dag og var til­gang­ur heim­sókn­ar­inn­ar að senda skila­boð um evr­ópska sam­stöðu og stuðning.

Yf­ir­taka Græn­lands ekki í boði 

Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti hef­ur lýst því yfir að hann vilji ná yf­ir­ráðum yfir Græn­landi og hef­ur t.a.m. ekki úti­lokað að hervaldi yrði beitt í því skyni.

J.D. Vance, vara­for­seti Banda­ríkj­anna, heim­sótti Græn­land í mars og dró þar aðeins í land. Hann sagði að ekki nauðyn­legt að beita hervaldi til að Banda­rík­in næðu yf­ir­ráðum en taldi að Trump gæti gert samn­ing við Græn­land um yf­ir­töku.

Á blaðamanna­fundi á Græn­landi sagði Macron að ríki Evr­ópu­sam­bands­ins væru sam­mála um að Græn­land væri til sölu. Þá sagði hann ekki koma til greina að landið yrði tekið yfir að öðru ríki.

Þá sagði Macron að Frakk­land væri reiðubúið að halda sam­eig­in­leg­ar heræf­ing­ar með með ríkj­um inn­an Atlants­hafs­banda­lags­ins og NB8-ríkj­un­um til þess að tryggja ör­yggi.

Macron hef­ur nú yf­ir­gefið Græn­land og held­ur til Kan­ada en þar verður hann viðstadd­ur leiðtoga­fund G7-ríkj­anna sem fer fram 17. júní.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert