Tíu látnir eftir flugskeytaárásir Írans

Viðbragðsaðilar að störfum í ísraelska þorpinu Tamra eftir árásir Írana …
Viðbragðsaðilar að störfum í ísraelska þorpinu Tamra eftir árásir Írana í nótt. AFP/Ahmad Gharabli

Að minnsta kosti tíu manns voru drepn­ir í flug­skeyta­árás­um Írans á Ísra­el í nótt, að sögn ísra­elskra yf­ir­valda.

Í Íran lá reykjarslæða yfir höfuðborg­inni Teher­an eft­ir að herþota Ísra­els gerði árás á tvær olíu­birgðastöðvar. Lang­ar biðraðir hafa verið á bens­ín­stöðvum í Íran und­an­farna daga af ótta við eldsneyt­is­skort.

Reykur frá olíubirgðastöð í Teheran eftir árás Ísraela.
Reyk­ur frá olíu­birgðastöð í Teher­an eft­ir árás Ísra­ela. AFP/​Atta Kenare

Sagði Banda­rík­in ekki tengj­ast árás­um

Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti sagði í morg­un að stjórn­völd í Washingt­on tengd­ust á eng­an hátt sprengju­árás­um Ísra­ela á Íran sem hóf­ust snemma á föstu­dag­inn.

Trump sagðist þó ætla að bregðast við af full­um krafti ef Íran ræðst á banda­rísk skot­mörk. Í færslu á Truth Social sagði hann jafn­framt að „við get­um auðveld­lega náð samn­ingi á milli Írans og Ísra­els til að binda enda á þessi blóðugu átök!!!”

Kona flutt á sjúkrabörum í Bat Yam, suður af Tel …
Kona flutt á sjúkra­bör­um í Bat Yam, suður af Tel Aviv. AFP/​Jack Guez

Ísra­elska lög­regl­an sagði að sex manns hefðu verið drep­in og að minnsta kosti 180 særst eft­ir flug­skeyta­árás á Bat Yam, skammt frá borg­inni Tel Aviv.

Loft­helg­in yfir Ísra­el verður lokuð í dag, þriðja dag­inn í röð, vegna flug­skeyta­árás­anna frá Íran.

Sendi­herra Írans hjá Sam­einuð þjóðanna seg­ir að 78 manns hafi verið drep­in og 320 særst í árás­um Ísra­ela á föstu­dag­inn.

Írönsk yf­ir­völd höfðu í morg­un ekki greint frá heild­ar­fjölda lát­inna eft­ir árás­ir Ísra­ela síðustu daga. Þau segja Ísra­ela þó hafa drepið hátt­setta hers­höfðingja og kjarn­orku­vís­inda­menn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert