Úlfaldamjólk veitir samfélaginu von

Með hjálp véla geta úlfaldarnir framleitt allt að sjö lítra …
Með hjálp véla geta úlfaldarnir framleitt allt að sjö lítra af mjólk á dag. AFP

Djúpt í eyðimörk suður­hluta Tún­is ganga úlf­ald­ar í átt að suðandi mjalta­vél­um. Mjólk þeirra er viðfangs­efni verk­efn­is sem leitt er af kon­um á svæðinu og veit­ir efna­hags­lega von fyr­ir íbúa sem búa flest­ir við bág­ar aðstæður.

Í far­ar­broddi verk­efn­is­ins er hin 32 ára gamla Latifa Frifita en hún hleypti af stokk­un­um fyrstu, og hingað til einu, ger­il­sneyðing­ar­stöð Tún­is fyr­ir úlf­alda­mjólk fyr­ir tveim­ur árum í bæn­um Meden­ine.

Stöðin bygg­ir á rann­sókn­um líf­efna­fræðings­ins Amel Sboui sem þróaði ger­il­sneyðing­araðferð sem varðveit­ir „nær­ing­ar­fræðilega og lækn­inga­lega eig­in­leika“ úlf­alda­mjólk­ur en leng­ir jafn­framt geymsluþol henn­ar í tvær vik­ur.

Mein­holl mjólk

Úlfalda­mjólk inni­held­ur allt að fimm sinn­um meira járn en kúamjólk, hún er ólík­leg til að valda of­næmi og sum­ar rann­sókn­ir hafa bent til þess að hún geti styrkt ónæmis­kerfið og hafi bólgu­eyðandi eig­in­leika.

Þá hafa klín­ísk­ar rann­sókn­ir sýnt að neysla mjólk­ur­inn­ar geti hjálpað fólki með syk­ur­sýki að minnka lyfja­skammta sína um allt að helm­ing.

Ger­il­sneyðing úlf­alda­mjólk­ur er hins veg­ar nauðsyn­leg til að gera hana að aðgengi­legri markaðsvöru þar sem mjólk­in er ann­ars mjög viðkvæm og skemm­ist fljótt.

Latifa Frifita hefur opnað fyrstu gerilsneyðingarstöðina fyrir úlfaldamjólk í Túnis.
Latifa Frifita hef­ur opnað fyrstu ger­il­sneyðing­ar­stöðina fyr­ir úlf­alda­mjólk í Tún­is. AFP

Vax­andi eft­ir­spurn

Störf og fjár­fest­ing­ar í suður­hluta Tún­is eru af skorn­um skammti en Frifita seg­ir að úlf­alda­mjólk­in hafi lengi verið van­met­in auðlind af hirðingj­um á svæðinu en nú vill hún breyta því.

Hún seg­ir að það hafi verið mik­il áskor­un að sann­færa þá um að selja mjólk úlf­ald­anna í stað kjöts þeirra. „Þeir sáu ekki til­gang­inn. Þeir halda henni venju­lega fyr­ir sig eða gefa hana frítt.“

Með tím­an­um hef­ur henni þó tek­ist að byggja upp gott sam­band við hirðingj­anna og sýnt þeim fram á eft­ir­spurn eft­ir mjólk­inni.

Úlfaldamjólk er meinholl.
Úlfalda­mjólk er mein­holl. AFP

Tvö­falda fram­leiðsluna

Frifita, sem er með meist­ara­gráðu í mat­væla­tækni, hóf að móta hug­mynd sína árið 2016, en það var ekki fyrr en árið 2023 sem hún hleypti ger­il­sneyðing­ar­fyr­ir­tæk­inu ChameLait af stokk­un­um.

Ger­il­sneyðing­ar­stöð henn­ar þjón­ar einnig sem þjálf­un­arstaður fyr­ir hirðingja til að læra vél­vædda mjaltaaðferð, sem skil­ar allt að sjö lítr­um af mjólk á dag sam­an­borið við aðeins tvo lítra með hefðbundn­um hand­mjölt­um.

Frifita rek­ur fyr­ir­tækið nú ásamt tveim­ur öðrum kon­um og fram­leiðir um 500 lítra af ger­il­sneyddri úlf­alda­mjólk á viku en mark­miðið er að tvö­falda fram­leiðsluna inn­an tveggja ára.

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert