„Ekki góð hugmynd“ að ráða Khamenei af dögum

Donald Trump Bandaríkjaforseti.
Donald Trump Bandaríkjaforseti. AFP/Mandel Ngan

Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti hafnaði áform­um Ísra­ela um að ráða af dög­um Ayatollah Ali Khamenei, æðsta klerk Írans.

Þrír banda­rísk­ir emb­ætt­is­menn greindu CBS News frá þessu.

Trump er sagður hafa sagt Benja­mín Net­anja­hú, for­sæt­is­ráðherra Ísra­els, að það væri „ekki góð hug­mynd” að ráða Khamenei af dög­um, að sögn eins emb­ætt­is­manns­ins.

Ayatollah Ali Khamenei, æðsti klerkur Írans.
Ayatollah Ali Khamenei, æðsti klerk­ur Írans. AFP

For­set­inn hef­ur ekk­ert tjáð sig op­in­ber­lega um málið.

Í viðtali við Fox News á föstu­dag­inn staðfesti Net­anja­hú hvorki né neitaði frétt Reu­ters um að Trump hefði lit­ist illa á áætl­un um að myrða æðsta klerk­inn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert