Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti segir Tyrkland reiðubúið til að gegna hlutverki í friðarviðræðum milli Írans og Ísraels.
Erdogan ræddi við Masoud Pezeshkian Íransforseta símleiðis í dag þar sem Erdogan greindi frá fyrirætlunum sínum.
Þá vill Erdogan binda tafarlausan enda á átökin en hefja kjarnorkuviðræður á ný. Tyrklandsforseti hefur gagnrýnt árásir Ísraela harkalega.
Erdogan hefur reynt að leiða friðarviðræður milli Rússlands og Úkraínu en Tyrkland var reiðubúið að hýsa viðræður þjóðanna.